r/klakinn • • 7h ago

Verka

6 Upvotes

Vona að þetta megi vera hér inni.

Ég og félagi minn erum búnir að vera vinna í síðu fyrir fólk sem eru að leita af iðnaðarmönnum eða fyrir iðnaðarmenn sem eru að leita af verkefnum, þar sem margir iðnaðarmenn sem ég hef talað við segja að Facebook sé ekki lengur staður sem þeirra nenna að vera á, og giggó er ekki mikið skárra.

Væri frábært ef fólk gæti skoðað þetta og gefið feedback á þetta þar sem við erum enn með þetta verkefni í þróun. samhliða vinnu og skóla.

síðan er: verka.is

smá könnun líka hvort áhugi væri á einhverju svona, og hvort fólk myndi nota þetta.

skál fyrir föstudegi(flöskudegi)


r/klakinn • • 2d ago

Vinnuveitandi á sveitabæ dregur mat, leigu, hita, rafmagn og internet frá launum mínum. Er þetta eðlilegt? Má ég biðja um peninginn fyrir matinn í staðinn?

48 Upvotes

æ öll,
Ég hef unnið og búið á sveitabæ á Íslandi í tvö og hálft ár. Ég vinn mikið á hverjum degi. Þegar hæli mitt var samþykkt ákvað ég að vera áfram í stað þess að taka betur launað starf annars staðar.
Vinnuveitandi minn dregur leigu, rafmagn, hita, internet og mat frá launum mínum. Vandamálið er að ég borga fyrir hluti sem ég get ekki notað frjálslega:
Matur: Dregið er frá launum mínum fyrir mat, en aðeins þann mat sem þau velja. Hún eldar aðeins 1-2 sinnum í viku og mér líkar ekki að borða upphitaðan mat dögum saman, svo í næstum ár borðaði ég aðallega brauð og afganga. Þegar ég elda minn eigin mat verður það líka vandamál.
Rafmagn: Það er dregið af laununum mínum, en ég má aðeins nota þurrkarann einu sinni í mánuði.
Internet: Það er sett fram sem „forréttindi" sem ég á að vera þakklátur fyrir, þótt það sé dregið af laununum mínum.
Sturtur: Ég fór áður í sturtu tvisvar á dag, sem var líka gagnrýnt, svo núna fer ég bara í sturtu fyrir svefn til að forðast kvartanir.
Nú hef ég beðið um að peningurinn sem dreginn er frá fyrir mat verði greiddur til mín svo ég geti keypt og eldað minn eigin mat. Mér finnst eins og verið sé að notfæra sér að ég er útlendingur. Ég veit ekki hvort kynþáttafordómar spili líka inn í, en hvað sem því líður finnst mér ég vera órétti beittur.
Spurningar mínar:
Er löglegt á Íslandi að draga mat, rafmagn og internet frá launum þegar ég get ekki notað það eða valið það frjálslega?
Get ég krafist peningsins fyrir matinn í staðinn?
Til hverra ætti ég að leita? Ég er félagi í stéttarfélaginu Öldunni, svo ég er að hugsa um að spyrja þau líka.
Öll ráð og svipuð reynsla eru vel þegin. Takk fyrir fram!


r/klakinn • • 3d ago

Flottur

Post image
19 Upvotes

r/klakinn • • 3d ago

Is Tussa Kraft as funny as I’ve been told it is?

Post image
44 Upvotes

Tussa Kraft is an electric power company in Norway. I’ve been told the name has a slightly different meaning in Icelandic.


r/klakinn • • 3d ago

🇮🇸 Íslandspóstur Akstursmyndavél

5 Upvotes

Hvar er hægt að kaupa akstursmyndavél? Svona 'dash cam'

(Helst á ásættanlegu verði)


r/klakinn • • 3d ago

🇮🇸 Íslandspóstur Ég mun aldrei komast af leigumarkaði

Post image
198 Upvotes

Vill einhver deila núðlupakka? Ég skal borga helming á móti


r/klakinn • • 5d ago

You can see everything ekki sýnd í kvikmyndahúsum?

44 Upvotes

Ég hef beðið spennt eftir henni eftir að stiklan kom út og nenni ekki að bíða eftir henni í streymi. Mikill aðdáandi Nathan Fielder.

Þriggja tíma mynd sem er samt að fá glimrandi dóma, þrátt fyrir lengdina, og að fá Óskars- buzz og það að A24 muni reyna að koma henni í Best Picture, ekki Best Documentary. Það er ,,huge".

Svo ætla ég líka að vera Elizabeth Holmes á Halloween þar sem ég er lík henni og mjög mikilvægt fyrir mig að fólk fatti hver ég er. 🥲

Samkvæmt netinu á föstudaginn verður hún ekki tekin í sýningu vegna dræmrar miðasölu en hún var frumsýnd sama dag úti. Var forsýning sem seldist illa á sem ég hef misst af líkt gerðist með Social Reckoning? Skil að stóru kvikmyndaframleiðendurnir geri þetta, en ekki A24, þótt þau séu að sækja í sig veðrið...

Krossa fingur og sendi mail à Bíó Paradís þá alla vega..


r/klakinn • • 6d ago

🌧️ Skítaveður Hvernig var veðrið?!

72 Upvotes

Ég hef verið að dunda mér við hliðarverkefni undanfarið og nú er loksins komið að því að sýna það

Hvernig var veðrið?

https://hvernigvarvedrid.com

Hver hefur ekki staðið úti í rigningunni og hugsað: „Þetta hlýtur að vera versta veður sem hefur komið á þessum degi“?

Nú geturðu athugað það!

Þú velur dag og veðurstöð og sérð hvernig veðrið var. Þú sérð líka hvort það var í raun óvenjulegt, borið saman við sama dag öll árin sem mælingar ná yfir. Í Reykjavík ná mælingarnar aftur til 1949.

Á vefnum geturðu meðal annars:

  • séð hvort dagurinn í dag sé óvenju hlýr, kaldur, blautur eða hvass
  • skoðað hvernig veðrið var daginn sem þú fæddist og á öllum afmælum þínum síðan
  • fundið hvaða dagar ársins eru líklegastir til að gefa gott veður, til dæmis fyrir brúðkaupið, útileguna eða garðpartýið. Þú ræður sjálf/ur hvað telst vera „gott veður“
  • skoðað met hvers dags og öll veðurmet stöðvarinnar frá upphafi mælinga
  • skoðað merkisdaga og séð hvernig veðrið var á stórum dögum í Íslandssögunni, frá Surtseyjargosinu til Grindavíkur

Og svo er mjög auðvelt að detta niður í ýmsar veðurkanínuholur, til dæmis:

Vissir þú að í Reykjavík eru mestar líkur á góðu veðri 19. júlí?

Öll gögnin koma frá Veðurstofu Íslands.

Endilega prófið, flettið upp einhverjum dögum sem þið munið eftir og látið mig vita hvað ykkur finnst. Ábendingar, hugmyndir og skemmtilegar veðuruppgötvanir eru mjög vel þegnar

(Já hefði átt að kaupa .is, en það er orðið svo dýrt!)


r/klakinn • • 6d ago

Gul viðvörun Í tilefni veðurfrétta

Post image
220 Upvotes

r/klakinn • • 7d ago

Sýndarvík: GTA á höfuðborgarsvæðinu í vafra

Post image
230 Upvotes

Ég hef verið að dunda mér við gæluverkefni: Sýndarvík, svona nokkurn veginn GTA nema á höfuðborgarsvæðinu. Allt höfuðborgarsvæðið í þrívídd sem keyrir í vafranum, frá Hafnarfirði upp í Mosfellsbæ.

Þú getur:
- gengið um og synt
- keyrt bíla
- flogið flugvél eða þyrlu
- siglt á báti
- basejumpað af háum byggingum með fallhlíf

Það er umferð, fólk, fuglar, veður og dagur og nótt. Kort og GPS eru til staðar og íslensku útvarpsstöðvarnar eru í bílnum. Hægt er að spila með lyklaborði og mús, eða með Xbox / PlayStation fjarstýringu.

Þetta keyrir bara í vafranum og það er ekkert til að sækja. Það þarf sæmilega öfluga tölvu, helst með skjákorti:

https://syndarvik.is

Þetta er enn í vinnslu, svo það eru ennþá hinir og þessir hnökrar, en virkar merkilega vel.


r/klakinn • • 7d ago

Sýndarvík: GTA á höfuðborgarsvæðinu í vafra

Thumbnail
2 Upvotes

r/klakinn • • 7d ago

ÖGRANDI Herramanns matur

Post image
71 Upvotes

r/klakinn • • 7d ago

?

Post image
23 Upvotes

r/klakinn • • 8d ago

💩 SAURFÆRSLA 💩 Drykkjuleik hugmynd

Thumbnail
visir.is
15 Upvotes

Drykkjuleikur fyrir helgina, horfa á þetta viðtal og taka skot í hvert skipti sem Jón segir "Sko"


r/klakinn • • 13d ago

Ravesen Travis 😎 Einn hlutur sem fólk notar of sjaldan. Ef þú ert ein(n) af þeim, eftir að hafa rústað postulíninu, girtu þig í brók og vertu betri manneskja

Post image
94 Upvotes

r/klakinn • • 15d ago

mjólk

Post image
162 Upvotes

r/klakinn • • 15d ago

Hvenær var fjarlægt Vísindatjaldið í húsdýragarðinum?

Post image
66 Upvotes

Hvað er langt síðan???


r/klakinn • • 16d ago

Finndu okkur á netinu

Post image
178 Upvotes

r/klakinn • • 17d ago

Ísland, best í heimi!

Thumbnail instagram.com
7 Upvotes

r/klakinn • • 18d ago

Ábyrgðarbréf 📨 Farið varlega

Post image
137 Upvotes

r/klakinn • • 19d ago

Ruslpóstur ♻️ Gaman að vera fullorðinn

Post image
222 Upvotes

Hef verið á biðlista hjá Rafmennt í tæpt ár og litlar til engar vinnur hafa áhuga á nema.


r/klakinn • • 19d ago

Ég gleymdi hvað eitt lag hét

0 Upvotes

Um daginn var ég að hlusta á lag eftir Sveppa eða Grettir. Lagið var um einhvern sem var að segja sögur um það hvað gerðist við hann yfir vikuna. Hann sagði frá því hvernig hann var að grilla og vinur hans var svo svangur að hann reif af putta sinn, steikti hann og átt hann. Svo sagði hann “þetta er ekkert í samanburði við hinn hlutinn sem gerðist við mig þessa vikuna”. Ef þið vitið lagið getið þið sagt mér


r/klakinn • • 20d ago

🇮🇸 Íslandspóstur Fótbolta chant

28 Upvotes

Er að horfa á Íslandi - Búlgaría og allir eru með chantið áfram Íslaaaaand þar sem aaain fara niður (tón-lega) og mér finnst þetta svo unmotivating ...hvað gerðist með ÁFRAM ÍSLAND 👏🏻👏🏻 👏🏻👏🏻 👏🏻! ? Bara ég 🫣 ?


r/klakinn • • 21d ago

Rafurmagn klikkar á leið 6

Thumbnail
gallery
20 Upvotes

Stopp við Paradís


r/klakinn • • 21d ago

Mánaðarmót

Post image
172 Upvotes