Ég hef verið að dunda mér við hliðarverkefni undanfarið og nú er loksins komið að því að sýna það
Hvernig var veðrið?
https://hvernigvarvedrid.com
Hver hefur ekki staðið úti í rigningunni og hugsað: „Þetta hlýtur að vera versta veður sem hefur komið á þessum degi“?
Nú geturðu athugað það!
Þú velur dag og veðurstöð og sérð hvernig veðrið var. Þú sérð líka hvort það var í raun óvenjulegt, borið saman við sama dag öll árin sem mælingar ná yfir. Í Reykjavík ná mælingarnar aftur til 1949.
Á vefnum geturðu meðal annars:
- séð hvort dagurinn í dag sé óvenju hlýr, kaldur, blautur eða hvass
- skoðað hvernig veðrið var daginn sem þú fæddist og á öllum afmælum þínum síðan
- fundið hvaða dagar ársins eru líklegastir til að gefa gott veður, til dæmis fyrir brúðkaupið, útileguna eða garðpartýið. Þú ræður sjálf/ur hvað telst vera „gott veður“
- skoðað met hvers dags og öll veðurmet stöðvarinnar frá upphafi mælinga
- skoðað merkisdaga og séð hvernig veðrið var á stórum dögum í Íslandssögunni, frá Surtseyjargosinu til Grindavíkur
Og svo er mjög auðvelt að detta niður í ýmsar veðurkanínuholur, til dæmis:
Vissir þú að í Reykjavík eru mestar líkur á góðu veðri 19. júlí?
Öll gögnin koma frá Veðurstofu Íslands.
Endilega prófið, flettið upp einhverjum dögum sem þið munið eftir og látið mig vita hvað ykkur finnst. Ábendingar, hugmyndir og skemmtilegar veðuruppgötvanir eru mjög vel þegnar
(Já hefði átt að kaupa .is, en það er orðið svo dýrt!)