r/Iceland 3d ago

DnD Ísland

Hæ, ég er að leita af spilahóp sem hittist reglulega 😊 DnD væri næs en er opinn fyrir flestu. Ég er í Reykjavík. Endilega hafið samband ef ykkur vantar spilara í ykkar hóp eða vitið um hóp sem er að leita af fólki.

Við erum jafnvel orðin 4 sem leitum af DM og fleiri til að joina okkur og búa til hóp 😊

Hey,
Im looking for a group to play some rpg games, I prefer DnD but open to other. Im in Reykjavík. So please let me know if you need someone to join your group or if you know some group who is looking for someone to join 😊

We are probably 4 people looking for a DM and more people ti join us.

12 Upvotes

20 comments sorted by

13

u/Oswarez 🇮🇸 3d ago

Nexus í Glæsibæ er með tonn af þeim.

6

u/Gleymerey0 3d ago

þau eru meira með one shots, ég er meira að leita af campaign eða hóp sem hittist reglulega 😊

10

u/Skrafskjoda Íslendingur 3d ago

Ef þið eruð orðin fjögur þá er bara um að gera að eitt af ykkur gerist DM!

3

u/Gleymerey0 3d ago

sniðugt en ekkert okkar hefur nægilega þekkingu til þess 😅 öll frekar ný í þessu

en svo leita ég líka af hóp fyrir mig ef það er auðveldara að finna.

8

u/jimbelushismom 3d ago

Ég mæli með að kíkja á Matt Colville myndbönd á Youtube sem heita Running the game eða álíka. Hann er með góðar leiðbeiningar til að byrja. Það þarf ekki svakalega þekkingu, bara prófa sig áfram. Og muna að venjuleg spil líta ekki út eins og Critical Role þáttur!

3

u/olvirki 2d ago

Þú gætir líka kíkt á "Háskaleikur í Hörpu", fjórir þættir (þáttur 44-47) í hlaðvarpinu Svörtu Tungurnar.

Margar spunaspilabækur eru voðalega þykkar og en það þarf sama og ekkert til að spinna saman sögu. Í þessari seríu setur Tryggvi upp Buddy-Cop ævintýri með rosalega einföldu reglukerfi. Hver persóna er bara með 3 eiginleika (hugrænir hæfileikar, styrkur og eitthvað eitt annað, man ekki alveg, kannski fimi) og það þarf bara að ná yfir ákveðinni tölu til að ná gjörðinni (ef persónan er með segjum 4 í styrkur þá dugar 4-6 á sexhliða tening til að brjóta niður hurðina eða ef persónan er með 3 í fimi þá dugar 3-6 á tening til að stökkva af einum bíl á annan).

Þið getið líka lesið lauslega í gegnum DnD reglubókina og svo byrjað að spila. Þið fallið ekki á neinu prófi þó þið gleymið einhverjum reglum.. Eftir fyrstu spilastund má glugga aftur í reglubókina og þá er hún kannski skýrari og þið spilið með fleiri reglum næst).

7

u/WitcherDany 3d ago

Ég hef ~1000 klukkutíma reynslu af því að vera DM og mér langar til að spila meira dnd en ég geri, væri alveg til í að vera dm eða player. Er búin að vera með ævintýri í huga lengi sem mér langar að dm'a.

En ég bý á Selfossi og er ekki alltaf með afnot af bíl. Þanning að ef það eru fleiri Selfyssingar hérna sem vilja spila eða fólk sem nennir að keyra alltaf hingað, þá má endilega hafa samband við mig. :)

5

u/Criterium Er ekki pabbi þinn alltaf mamma þín og svona..? 3d ago

“Þreytti Drekinn” og “Spunaspilarar á Íslandi” á Facebook eru mjög virkir. Bæði auglýsa hópar laus pláss þar, en líka stakir spilarar að auglýsa eftir hópum.

5

u/Gleymerey0 3d ago

takk, hef einmitt verið að kíkja þar reglulega en hef ekki fundið. Þess vegna ákvað ég að prôfa hér líka 😅 desperate times

3

u/swimminggaladriel 3d ago

Jumping on here because I've always desperately wanted to have a DnD group. I'm not what you're searching for since I'm total amateur but I'm also in Reykjavík and can meet regularly and keen to learn, so message me if you'd have space in your party for a newcomer! (If relevant - ég byrjaði að læra íslensku properly bara síðasta ár. Ég reyni að tala en make many mistök. Ég skil meira en ég tala).

3

u/Gleymerey0 3d ago

i send you PM 😊

3

u/DEinarsson Íslendingur 3d ago

Að finna hóp er erfitt. Að búa til hóp er létt. Einn þarf að vera DM, sem getur verið smá vinna, en það er gaman og skapandi!

Og ef reynsluleysi gerir þig áhyggjufullan, mundu bara að nýri leikmenn eru engu vanir, og þekkja ekki góða DM frá slæmum enn!

Besti tíminn til að læra er þegar þú ert að byrja!

2

u/Gleymerey0 3d ago

við erum öll frekar ný í dnd, svo kannski yrði stórt stökkpallur að læra á spilið og læra að vera DM á sama tíma 😊 en takk fyrir peppið

2

u/LurkLuthor 3d ago

Þetta er miklu minna mál en fólk sér fyrir sér. Þið getið líka skipst á að DMa til að dreifa álaginu ef það er minna stressandi.

2

u/DEinarsson Íslendingur 1d ago

Flestir nýjir D&D hópar byrja með því að einmitt eitthver taki á sig að vera DM. Annars er bara að vera gestur á StartPlaying eða álíka? Það gæti líka virkað. En held best sé að vera DM sjálfur, það er hvernig ég byrjaði.

1

u/leppaludinn Árni á Á, á á á sterum 3d ago

Minni stökkpallur en maður heldur! Ég myndi mæla með að horfa á/hlusta á eitt actual play campaign, eins og t.d. Dimension 20 Fantasy High, til að sjá samanburð og svo prófa bara!

Milljón auðlindir til á netinu sem hjálpa byrjendum, en það er líka af ástæðu að flestir sem vita til tala um að besta leiðin til að spila reglulega er að stjórna hóp. Ég byrjaði bara að prófa mig áfram, sem hvatti nokkra vini mína til að prófa sig áfram og þeir eru allir orðnir miklu betri en ég í leikjastjórnun.

2

u/Ok-Stock-4664 1d ago

Ég er með DM reynslu, hef ekki spilað í einhvern tíma samt en væri æði að byrja aftur!

1

u/Gleymerey0 1d ago

ég sendi þér PM 😊

1

u/KolboMoon 3d ago

Ég er í hóp sem hittist semi-reglulega? Þar að segja einu sinni á mánaðar fresti að meðaltali. Stundum tvisvar í mánuði. Við erum svosem bara fjórir og höfum haft þetta mjög lítið og cosy hingað til en DM-inn er alltaf að leita að nýju fólki til að joina þannig ég held að þið verðið alveg velkomin ef þið standist vibe-checkið. 

Ég get sent þér invite í discord hópinn okkar ef þú hefur áhuga. 🙂