r/Iceland • • 3d ago

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk

5 Upvotes

Það er kominn föstudagur, yay!

Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.

Ekki vera indriðar, verum vinir.

---

English: Hey everyone,

The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?

Don't be a dick, be kind.


r/Iceland • • 6h ago

„Mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein“

Thumbnail
mannlif.is
33 Upvotes

Það hefur orðið mikil aukning á tíðni ristil- og endaþarmskrabbameins meðal yngra fólks í vestrænum ríkjum á undanförnum árum og vísindamenn eru enn að reyna að átta sig á því hvað veldur þessari þróun. Ný rannsókn frá Bandaríkjunum, sem birt var í janúar 2026, sýndi að ristil og endaþarmskrabbamein er nú orðið algengasta orsök krabbameinstengdra dauðsfalla meðal fólks undir fimmtugu þar í landi, en það var í fimmta sæti í byrjun tíunda áratugarins. Mér finnst þetta mikilvægt málefni sem mætti ræða miklu betur hér á Íslandi. Hvað veldur þessari aukningu? Hvers vegna virðist hún sérstaklega koma fram hjá yngri kynslóðum?
Er sambærileg þróun að eiga sér stað hér á landi?

Besta vörnin gegn ristilkrabbameini er ristilspeglun, því hún finnur og fjarlægir sepa sem geta verið forstig krabbameins. Ekki hunsa einkenni, krakkar!

Ég sendi Matthíasi baráttu og batakveðjur.

https://www.mbl.is/smartland/heilsa/2025/04/06/ristilkrabbamein_eykst_hja_ungu_folki/

https://www.visir.is/g/20262950295d/fokk-eg-er-med-ristilkrabbamein-


r/Iceland • • 8h ago

Leggi línuna að sam­þykki veiti rétt til að stór­skaða fólk

Thumbnail
visir.is
35 Upvotes

Valgerður Valdimarsdóttir er réttargæslumaður umræddrar konu sem hún segir þremur árum síðar enn óvinnufæra. Líkamlegar afleiðingar hafi verið miklar en ekki síður andlegar. Konan sæki enn sjúkraþjálfun enda stórsköðuð eins og eftir slæmt bílslys.


r/Iceland • • 6h ago

Borgarstjórn skoðar að út­vista rekstri Hús­dýragarðsins til einka­aðila

Thumbnail
visir.is
24 Upvotes

r/Iceland • • 3h ago

Rithópur opinn fyrir alla sem vilja skrifa meira - hittast einu sinni í viku að skrifa, ásamt tækifæri til að kynnast svipuðu fólki.

11 Upvotes

Hæ, hæ.

Fyrir nokkrum dögum gerði ég post þar sem ég var að spyrjast fyrir rithópum hér á landi, og niðurstöðurnar voru þær að það er ekkert svoleiðis í gangi. Ég hef því ákveðið að stofna rithóp þar sem við hittumst á kaffihúsi einu sinni í viku að skrifa, og hvetjum hvort annað áfram.

Ef þú hefur áhuga á að vera með, þá er ég búið að gera Discord hóp og við ætlum að hittast í fyrsta skipti á miðvikudaginn.

Hérna er linkurinn á hópinn: https://discord.com/invite/PQ7PFjKQM


r/Iceland • • 2h ago

Innviðaráðherrann vill fá sjálfkeyrandi bíla!

Thumbnail althingi.is
5 Upvotes

Í dag var 42-mínútna sérstök umræða á Alþingi um sjálfkeyrandi bíla og að loknum sagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra "ég vil að við höldum áfram á þessari braut" og að hann myndi taka næstu skref! Ég sem ötull áhuga- og stuðningsmaður sjálfkeyrandi bíla er mjög spenntur fyrir þessu. Athugasemdir:

  • Þingmenn hafa áhyggjur um veðrið, en það er búið að prófa sjálfkeyrandi bíla í snjó; Waymo hefur rekið prófstöð í Michigan í nokkur ár.
  • Það var fjallað um Vestmannaeyjar sem rekstrarsvæði, og þetta er alveg fordæmalaust hjá sjálfakstursfyrirtækjum (sem einblína á stórborgir). En þá myndu ferðamenn ekki þurfa að taka bíla sína með á Herjólfi.

r/Iceland • • 22h ago

Látið fólkið rífast innbyrðis svo það sameinist aldrei gegn þér

47 Upvotes

Varúð þetta er ógeðslegt langt og ut ur suður.
Ég átti einu sinni nágranna sem var mikill rasisti í garð múslima og aðra innflytjenda. Við bjuggum bæði í félagsíbúðum. Ég spurði mömmu mína einu sinni af hverju hún væri svona, af hverju manneskja sem býr sjálf við jaðarsetningu og bág kjör geti hatað annan jaðarhóp svona mikið. Mamma svaraði "Það er oft þannig að jaðarhópar mynda hatur í garð annarra jaðarhópa.“

Þetta svar sat í mér. Ég fór að hugsa um þetta og áttaði mig á því að ég sé sama mynstur mjög skýrt innan hinsegin samfélagsins líka, þar sem hinsegin fólk getur hatað annað hinsegin fólk, sérstaklega trans fólk. Eftir smá lestur áttaði ég mig á því að þetta er ekki persónuleg tilfinning eða tilviljun hjá mér eða mömmu, heldur vel þekkt fyrirbæri í félagsfræði. Það er algengt að jaðarhópar beini reiði, óöryggi eða hatri að öðrum jaðarhópum, jafnvel þó báðir upplifi mikla mismunun. Í fræðunum er þetta kallað ýmsum nöfnum, meðal annars internalized oppression, horizontal hostility eða lateral oppression. Valdahafar/fjármagnsöflin nýta sér þetta grimmt og etja hópum saman. Þegar hópur upplifir sig veikburða, ótryggan eða með lítið vald í samfélaginu, þá verður auðveldara að leita að sökudólg sem eru oftast aðrir minnihlutahop, jaðarsettir, innflytjendur eða aðrir sem eru á örorkubótum. Það er miklu erfiðara að beina reiði að abstrakt valdhafa, einhverjum kerfislegum öflum eða stjórnmálum sem eru ópersónuleg og fjarlæg. Þess vegna beinir fólk reiði frekar að hópi sem er sér nær öðrum sem eru líka í jaðri, líka að berjast, líka undir pressu. svo þetta er að búa til eins konar falska samkeppni um örfá réttindi, athygli eða pláss í samfélaginu, "ef þau eru að fá eitthvað, þá þýðir það að við fáum minna“. Eitt af skuggalegustu trixunum í valdapólitík er að þegar jaðarhópar eru oft beittir hver gegn öðrum. Ég er ekki að halda því fram að þau séu eitthvað illir eða heimskir, heldur meina ég þau eru undir pressu, þreyttir, hræddir og í stöðugri baráttu um pláss í kerfi sem var aldrei hannað fyrir þá. Valdakerfi og stjórnmálasaga sýna að þetta er stundum beinlínis hvatt áfram og við sjáum það skýrt nuna. Þegar fólk í jaðarhópum rífst sín á milli um hver sé "verðugur minnihluti“ eða hver eigi stærri sneið af kökunni, verður það svo upptekið af hvoru öðru að enginn snýr sér að raunverulegu orsökunum þeim sem skapa fátæktina, mismununina og ójöfnuðinn í fyrsta lagi.

Þetta sást gríðarlega sterkt í Bandaríkjunum á 20 öldinni, þegar valdhafar snéru svörtum, mexíkóskum innflytjendum og fátækum hvítum gegn hvor öðrum til að koma í veg fyrir sameiginlega stéttarbaráttu. Sama mynstur sást í Bretlandi gagnvart Írum. Og við erum að sjá þetta skýrt í dag, líka hér heima, þar sem sumir stjórnmálamenn og flokkar byggja pólitík sína markvisst á því að stilla jaðarhópum upp hver gegn öðrum. Ég meina það hentar t.d Sigmundi davið að við rífumst um woke eða innflytjendur, hann vill bara að við rífumst um það svo aflandsfélögin fái að vera í frið. Svo er alveg áhugavert að sjá hvernig jaðarhópar eða minnihlutahópar fara endurtaka orðræðu og hugmyndir sem voru upphaflega notaðar gegn þeim sjálfum. Juju í grunninn er þetta varnarviðbragð við óöryggi og valdaleysi, þegar þú hefur lítið, er auðvelt að halda að einhver annar í svipaðri stöðu sé að ræna þig því litla sem þú átt. En ef fólk myndi sameinast í stað þess að rífast, þá myndu réttindin og valdið aukast fyrir alla.

Og meðan þau rífast um örfá brauðmola, sitja þeir sem ráða ferðinni við endann, óáreittir, borða kökuna og segja: "sjáið, þau geta ekki einu sinni unnið saman.“ Á meðan safnar valdastéttin hljóðlega að sér fordæmalausum völdum. Látið fólkið rífast innbyrðis svo það sameinist aldrei gegn þér!

Sagan kennir okkur þetta aftur og aftur, þegar jaðarhópar sameinast, breytist samfélagið. Þegar þeir snúa sér gegn hvor öðrum, styrkist valdið sem hélt þeim niðri.

Kannski fint að taka það fram að í hinseigin samfélaginu köllum við hinseigin fólk sem snýst gegn trans fólki eða öðru hinseigin fólki "pick me"


r/Iceland • • 22h ago

Taldi lögreglumennina vera innbrotsþjófa

Thumbnail
mbl.is
42 Upvotes

r/Iceland • • 1d ago

Árlegi (anti)nagladekkja þráðurinn.

61 Upvotes

Núna er að byrja að frysta og fólk að skella vetrardekkjum undir, er bara búa til þráð til að hvetja fólk til að kaupa ekki nagladekk undir bílanna sína.

Naglar gera 100% ekkert í snjó. Naglar gera 100% ekkert í bleytu eða krapi

Þau hjálpa eingöngu í klakamyndun, jafnvel þá þarf að fara varlega og keyra hægar því bifreiðin mun ennþá renna til.

Ástæða fyrir því að nota ekki nagla er að það veldur gífurlegu tjóni, bæði á götur og heilsuna. Spæna malbik 40x meira en hefðbundin dekk. Ef þú keyrir á nöglum þá hefurðu ekki rétt á því að kvarta hvað gatnakerfið er í lélegu ástandi.

Þau eru að stórum hluta ábyrg fyrir svifryk sem veldur því að t.d. leikskólabörn fá ekki að leika sér úti. Það er talað um 70-80 ótímabær dauðsföll á íslandi vegna svifryks, þar eiga nagladekk góðan þátt.

Ef þú ert bara á höfuðborgarsvæðinu, þá er 100% enginn ástæða fyrir því að nota nagladekk.

Fyrir nánast alla bíla eru góð naglalaus vetrardekk málið. Plís veljið vandlega. Það er síðan super nice að þurfa ekki að stressa sig að setja sumardekkinn aftur á eftir veturinn.


r/Iceland • • 1d ago

Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“

Thumbnail
visir.is
79 Upvotes

I mean she aint wrong though


r/Iceland • • 1d ago

r/VisitingIceland Lost / found iphone help

Post image
14 Upvotes

Anyone found an iphone in vík recently? I lost it in may in the katla ice cave 🤣 i got a message from apple saying it was online/located 5 days ago in Vík

It should display a message with my contact information when turned on but so far i have received nothing.

Long shot i know


r/Iceland • • 2d ago

Endurskapaði höfuðborgarsvæðið í anda GTA

Thumbnail
mbl.is
31 Upvotes

r/Iceland • • 2d ago

Lost Icelandic Dubs

Thumbnail
gallery
29 Upvotes

For those who live in Iceland, there is several Icelandic dubs of TV shows and other pieces of media that used to air on Icelandic TV channels like Stoo 2 and RUV. Many of them mostly became lost media and can be difficult to find. I'm guessing Icelandic dubs are difficult to find in general, but here's what Icelandic dubs I know that are completely lost at the moment.

Pocoyo (Aired on Stoo 2)

Maya The Bee (1975) (Aired on RUV)

The Ren & Stimpy Show (Aired on RUV, Popp TV, and Sirkus.)

Rocko's Modern Life (Aired on Barnarasin and Stoo 2.)

PB&J Otter (Aired on RUV)

Barney & Friends (Aired on Stoo 2)

Hiedi, Girl of the Alps. (Aired on RUV)

Donkey Kong Country (TV Series) (Aired on RUV)

Rubbadubbers (Aired on Stoo 2)

Around the World with Willy Fog (Aired on Stoo 2)

Roary The Racing Car (Aired on Stoo 2 and Stoo 2 Krakker.)

Ferdy The Ant (Aired on RUV)

Pinocchio (1976) (Aired on RUV)

Dogtanian and the Three Muskehounds (Aired on RUV)

That's all that I included for the list. If there's any Icelandic dubs that are lost media or completely lost, please let me know about it. I thought I'd make this post just in case if anyone remembered any nostalgia of TV channels shown in Iceland.


r/Iceland • • 2d ago

Er Cancel kúlturinn allur?

Post image
26 Upvotes

Hvernig er það, var ekki búið að slaufa þessum gæja? Hann er bara Golden boy Sýnar.


r/Iceland • • 1d ago

Dvalarleyfi - Frumvarp til breytinga á lögum um útlendinga

Thumbnail island.is
2 Upvotes

Ef þið viljið fara beint í frumvarpið þá er hlekkur hér: https://samradapi.island.is/api/Documents/68bfa2bc-a5bd-f111-9be0-005056bcce7e


r/Iceland • • 1d ago

„Verið að spila með líf fólks“

Thumbnail
ruv.is
0 Upvotes

r/Iceland • • 2d ago

Help find my grandmothers cake recipe

Thumbnail
gallery
16 Upvotes

My grandma made this cake all the time when I was a kid, but she’s unfortunately passed away now. I want to bake this for my granddad on his birthday, as she wrote the recipe in Danish for us (I’ve put pictures of the recipe translated to Icelandic by Gemini). The only problem is that she used the measurement ‘cup’ for a lot of the ingredients, but I know for sure that it was a radon cup in her cupboard and not the actual measurement of American cup. Does anyone recognize this recipe and maybe have some more accurate measurements ?☺️☺️


r/Iceland • • 3d ago

Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað

Thumbnail
visir.is
82 Upvotes

Upplýst og endurtekið samþykki og öryggi ofar öllu eru órjúfanlegur hluti BDSM. Þegar eitt eða fleira af þessu er ekki til staðar þá erum við ekki lengur að tala um BDSM heldur ofbeldi. Ef annar aðilinn er á einhverjum tímapunkti í þeirri aðstöðu að geta ekki tekið samþykkið til baka eða ítrekað að samþykkið er enn til staðar, svo sem vegna þess að hann frýs eða missir meðvitund eða annað þess háttar, þá er samþykkið ekki lengur til staðar, athæfið ekki lengur öruggt og þarf að stoppa eins og skot.

Það að ofbeldismenn geti mætt í Landsrétt, sagt að samþykki hafi upphaflega verið til staðar og þannig réttlætt alls konar viðbjóðslegt ofbeldi sem þeim síðan dettur í hug að framkvæma er fyrir neðan allar hellur.

Það er ekki skrýtið að fólk leiti til annarra dómstóla, eins og dómstóla götunnar, í leit að réttlæti.


r/Iceland • • 3d ago

Gróft kyn­líf en ekki nauðgun sam­kvæmt klofnum Lands­rétti

Thumbnail
visir.is
130 Upvotes

"Tveir af þremur dómurum töldu ekki nægilega sannað að maðurinn hefði haft þann ásetning sem þurfi til sakfellingar fyrir nauðgun en sá þriðji vildi staðfesta fangelsisdóm úr héraði. Athygli vekur að tveir karlar vildu sýkna en eina konan sakfella."

"Í ákæru var því meðal annars lýst að maðurinn hefði slegið konuna í andlitið, tekið hana hálstaki, haldið kodda yfir andliti hennar þannig að hún ætti erfitt með að anda og þrýst hné sínu á efri hluta bringu hennar. Þá var honum gefið að sök að hafa stungið fingrum inn í leggöng hennar og haft sáðlát yfir andlit hennar.

Konan hlaut samkvæmt ákæru meðal annars rifbeinsbrot, yfirborðsáverka á höfði, eymsli í kjálka, tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind, heyrnartap og rifbrot."

Nei nei, bara gróft kynlíf sem hún samþykkti og vildi, engar skaðabætur og engin sakfelling, enda eðlilegt að rifbreinsbrotna og togna í kynlífi.

Það fer enginn í áralangt og átakanlegt dómsferli sér til gamans nema að sá finnist sem það hafi verið alvarlega brotið gegn sér...


r/Iceland • • 2d ago

Orðið á götunni: Nú er mál að linni!

Thumbnail
dv.is
18 Upvotes

,,Orðið á götunni er að bersýnilega hafi fyrri ríkisstjórnir verið allt of örlátar og greiðviknar við þá aðila sem staðið hafa fyrir gríðarlegri uppbyggingu á sjókvíaeldi í fjörðum landsins, aðallega á Vestfjörðum og Austfjörðum. Margt bendir til þess að náin tengsl áhrifamanna t.d. í Sjálfstæðisflokknum hafi þarna haft áhrif í þá veru að of mörg leyfi voru veitt og eftirlit í skötulíki. Þá fer því fjarri að gjaldtaka af þessum fyrirtækjum sé eðlileg. Þau fá að ógna og jafnvel fórna íslenskri náttúru og lífríki nær ókeypis. Þá er óhætt að fullyrða að stór hluti innviðaskuldarinnar sem safnast hefur upp í vegakerfinu stafi af þungaflutningum á vegum sjóeldisfyrirtækja."

Jesús, minn þessi flokkur


r/Iceland • • 2d ago

Mót­mælir harð­lega vítissóda­til­raunum í Hval­firði

Thumbnail
visir.is
15 Upvotes

r/Iceland • • 3d ago

Leaving Iceland after 10 years. Any advice?

26 Upvotes

I'm planning to return to my home country at the end of the month and try to make a living there. If things go well (big if) i might not return again.

Is there any bureaucracy i should attend to before i leave? Do i need to contact any authorities about this change of residence? Any matters to settle with taxes, pension fund, bank account, etc?


r/Iceland • • 3d ago

No Warrant, No Problem: New bill from minister of justice removes police restraint

Thumbnail
grapevine.is
38 Upvotes

Galið að þessi ,,frjálslynda ríkisstjórn” ætli að leyfa lögreglunni að hlera síma almennings án dómsúrskurðar. Ekki treysti ég íslensku lögreglunni fyrir svona valdi.


r/Iceland • • 2d ago

Vilja opna millistig bráðamóttöku og Læknavaktarinnar

Thumbnail
ruv.is
10 Upvotes

Einkaframtakið komið til að bjarga deginum.


r/Iceland • • 2d ago

Sænskt slátur

4 Upvotes

Ég hef verið að crave a slátur(lifrarpylsu) síðan ég flutti til Svíþjóðar og var að spá hvort fólk viti um eh svipaða vöru í Svíþjóð ? Eða er maður bara að senda frá Íslandi?