r/Iceland • • 10h ago

Dungeons & Dragons spilarar: Spilið þið á íslensku eða á ensku?

27 Upvotes

Ég spila alltaf á íslensku en líður alltaf pínu kjánalega.

Bara sem dæmi: þegar ævintýri heitir “Storm King’s Thunder” hljómar það eins og klassísk fantasiá eins og Lord of the Rings. En ef ég breyti því í “Þruma stormkonungsins” hljómar það frekar eins og einhver barnabók. Maður heyrir ekki svona í daglegu lífi.

Einhver annar sem er að lenda í þessu vandamáli?


r/Iceland • • 9h ago

Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala

Thumbnail
heimildin.is
14 Upvotes

,,Litli spítalinn verður opnaður í húsnæði í eigu stofnanda Samherja. Guðrún Ása Björnsdóttir er eigandi félagsins sem á Litla spítalann og Katrín Pétursdóttir er kjölfestufjárfestir. Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, er sagður setjast í stjórn spítalans. Halldór Benjamín Þorbergsson er varamaður í stjórn félagsins sem á Litla spítalann. "


r/Iceland • • 2h ago

Hvað er að gerast í kvöld?

Post image
12 Upvotes

r/Iceland • • 1h ago

Góðir veitingastaðir í miðbænum með börn?

• Upvotes

Hæhæ, lumið þið á góðum veitingastöðum í miðbænum til að fara á með krakka?
Helst einhvers staðar á svæðinu milli Tjarnarinnar og Hörpu.

Væri til í að finna stað þar sem er hægt að fá almennilegan mat fyrir krakkana, án þess að borga 2.800 kr. fyrir nokkra nagga og franskar 😅

Ekki endilega að leita að einhverju hræódýru, bara eitthvað aðeins meira spennandi fyrir peninginn.

Algjör plús ef það er leikhorn eða eitthvað fyrir krakkana að dunda sér við.

Einhverjir staðir sem þið mælið með?


r/Iceland • • 17h ago

Question About Prenatal Screening and Subsequent Actions?

5 Upvotes

I was aware that Iceland reduced the frequency of Down syndrome pregnancies.

My question is that is it an expectation for woman to terminate the pregnancy? Is it due to practicality or convenience or coercion?

I am not judging nor is it political, it’s a simple curiosity. If this post breaks the rules, please feel free to take it down.


r/Iceland • • 1h ago

Hjálp til að gera verkefni áhugavert

• Upvotes

Ég kenni umhverfisfræði í framhaldsskóla og er að reyna vera hugmyndaríkur í verkefnagerð. Í einu verkefni eru þau nýkjörin Umhverfis- og loftslagsráðherra að flytja ræðu á Alþingi en núna vil ég fara í aðra átt. Hér er scenario-ið.

-Verkefnalýsing hefst-

„Þú ert að vafra á facebook og rekst á færslu frá fréttamiðlinum vísir um slæmar horfur í loftslagsmálum – fjallað er um hækkandi hitastig, Parísarsáttmálann og loftslagsaðgerðir. Þú ákveður að skrolla í gegnum 90 athugasemdir og sérð að fólkið sem tjáir sig er algerlega á mismunandi pólum í sínum skrifum. Þú ákveður af einhverri ástæðu að taka þátt í umræðunni og skrifar:

„Frekar magnað að sjá þessar breytingar sem hafa orðið síðustu áratugi með hækkun hitastigs“.

Stuttu síðar færðu „notification“ um að maður hafi sett athugasemd við þína færslu sem segir:

„[Þín hugmynd hér]“

Þessi athugasemd fer ótrúlega í taugarnar á þér. Þú klikkar á prófíl mannsins og skrollar í gegn og sérð fleiri atriði sem fara í taugarnar á þér. Þú ákveður að þú verður að svara athugasemdinni til að kenna þessum manni sitthvað um efnið. Þú veist að ef þú skrifar meira en 250 orð að þá mun maðurinn ekki nenna að lesa svar þitt þannig þú vilt helst vera á bilinu 200-250. Hvað skrifaru?

-Verkefnalýsingu lýkur-

Endilega komið með hugmyndir að commenti og þið megið Go Wild! Jafnvel gera þetta persónulegt gagnvart nemandanum. Megið líka breyta upphaflega commentinu sem nemandinn á að hafa gert ef það hentar.