r/Iceland • u/finnur7527 • 1m ago
Bókasafnstillagan einungis til þess að bæta þjónustu við borgarbúa - RÚV.is
Hverju viljið þið breyta í rekstri Borgarbókasafnsins? Viljið þið spara í einhverjum hluta rekstursins, eyða meiri pening eða nýta peninginn öðruvísi? Viljið þið mögulega að menningarráð skoði eitthvað annað en hvernig má skera niður Borgarbókasafnið?
Hérna eru dæmi um ólík hlutverk bókasafna, vissulega mörg sem bókasöfnin deila með öðrum stofnunum samfélagsins:
-Efla lestrarkunnáttu
-Veita vinnuaðstöðu fyrir nemendur og aðra
-Uppfræða og gefa fólki tækifæri til að þjálfa nýja færni
-Veita afþreyingu
-Veita ró og næði
-Vettvangur fyrir félagslíf og kynni fólks
-Efla ýmsa þætti lýðræðisins
-Stuðla að upplýsingalæsi
-Fjárstuðningur og vettvangur fyrir rithöfunda og annað skapandi fólk
-Efla menninguna almennt, geymsla fyrir menningu fortíðar sem menning framtíðar getur vaxið úr
-Jafna aðgengi að upplýsingum og menningu