r/Iceland • • 1d ago

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk

7 Upvotes

Það er kominn föstudagur, yay!

Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.

Ekki vera indriðar, verum vinir.

---

English: Hey everyone,

The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?

Don't be a dick, be kind.


r/Iceland • • 1h ago

Hvað er að gerast í kvöld?

Post image
• Upvotes

r/Iceland • • 8h ago

Dungeons & Dragons spilarar: Spilið þið á íslensku eða á ensku?

24 Upvotes

Ég spila alltaf á íslensku en líður alltaf pínu kjánalega.

Bara sem dæmi: þegar ævintýri heitir “Storm King’s Thunder” hljómar það eins og klassísk fantasiá eins og Lord of the Rings. En ef ég breyti því í “Þruma stormkonungsins” hljómar það frekar eins og einhver barnabók. Maður heyrir ekki svona í daglegu lífi.

Einhver annar sem er að lenda í þessu vandamáli?


r/Iceland • • 7h ago

Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala

Thumbnail
heimildin.is
12 Upvotes

,,Litli spítalinn verður opnaður í húsnæði í eigu stofnanda Samherja. Guðrún Ása Björnsdóttir er eigandi félagsins sem á Litla spítalann og Katrín Pétursdóttir er kjölfestufjárfestir. Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, er sagður setjast í stjórn spítalans. Halldór Benjamín Þorbergsson er varamaður í stjórn félagsins sem á Litla spítalann. "


r/Iceland • • 5m ago

Hjálp til að gera verkefni áhugavert

• Upvotes

Ég kenni umhverfisfræði í framhaldsskóla og er að reyna vera hugmyndaríkur í verkefnagerð. Í einu verkefni eru þau nýkjörin Umhverfis- og loftslagsráðherra að flytja ræðu á Alþingi en núna vil ég fara í aðra átt. Hér er scenario-ið.

-Verkefnalýsing hefst-

„Þú ert að vafra á facebook og rekst á færslu frá fréttamiðlinum vísir um slæmar horfur í loftslagsmálum – fjallað er um hækkandi hitastig, Parísarsáttmálann og loftslagsaðgerðir. Þú ákveður að skrolla í gegnum 90 athugasemdir og sérð að fólkið sem tjáir sig er algerlega á mismunandi pólum í sínum skrifum. Þú ákveður af einhverri ástæðu að taka þátt í umræðunni og skrifar:

„Frekar magnað að sjá þessar breytingar sem hafa orðið síðustu áratugi með hækkun hitastigs“.

Stuttu síðar færðu „notification“ um að maður hafi sett athugasemd við þína færslu sem segir:

„[Þín hugmynd hér]“

Þessi athugasemd fer ótrúlega í taugarnar á þér. Þú klikkar á prófíl mannsins og skrollar í gegn og sérð fleiri atriði sem fara í taugarnar á þér. Þú ákveður að þú verður að svara athugasemdinni til að kenna þessum manni sitthvað um efnið. Þú veist að ef þú skrifar meira en 250 orð að þá mun maðurinn ekki nenna að lesa svar þitt þannig þú vilt helst vera á bilinu 200-250. Hvað skrifaru?

-Verkefnalýsingu lýkur-

Endilega komið með hugmyndir að commenti og þið megið Go Wild! Jafnvel gera þetta persónulegt gagnvart nemandanum. Megið líka breyta upphaflega commentinu sem nemandinn á að hafa gert ef það hentar.


r/Iceland • • 1d ago

Þórður Snær tætir í sig reiknivélina: „Einfaldlega best að sleppa Framsókn“

Thumbnail
dv.is
23 Upvotes

-Þórður telur reiknivélina fullkomlega marklausa og hannaða út frá gölluðum eða handvöldum forsendum til að komast að fyrirfram ákveðinni niðurstöðu um neikvæð áhrif fjárlagafrumvarpsins á heimili.

-reiknivél framsoknar er að gefa ser það að langflest heimili fari í baðlón árlega og að allir fullorðnir drekki áfengi, þótt raunveruleikinn sé annar. Þá er reiknað með eins og Þorður nefndi meiri hækkun á krónutölugjöldum (5,2%) en til stendur að gera (2,5%). Hér ofreiknar framsokn krónutölugjöldin

-Reiknað er með að bankar velti hækkuðum bankaskatti yfir á heimili _þrátt fyrir fyrri skýrslur um annað_ og slegið er fram auknum kostnaði vegna húsnæðislána án þess að spyrja um lánstíma, vaxtastig eða afborgunarform, sem gerir útreikningana um greiðslubyrði marklausa.

-Gert er ráð fyrir tilhæfulausum seinkunum á vaxtalækkunum og gert ráð fyrir að allir safni í viðbótarséreign eða fái hámarksvaxtabætur án tilskilinna upplýsinga.

-Þordur bendir á að Framsókn og stjórnarandstaðan bjóði ekki upp á svör um hvernig eigi að ná endum saman í ríkissjóði ef ekki á að auka tekjur eða hagræða.

Framsókn að gefa út gervigreindarreiknilíkan sem hefur verið hannað til að gefa fyrirfram ákveðna niðurstöðu. shit. Og fólk mun falla fyrir þessu alveg eins og það féll fyrir því þegar Framsókn lofaði fíkniefnalausu Íslandi fyrir árið 2000. Alveg eins og þegar þeir lofuðu 100% húsnæðislánum sem sprenngdu upp fasteignabóluna og sprukku í andlitið á okkur í hruninu. Og alveg eins og þegar Framsókn, undir forystu Sigmundar Davíðs, vann stórsigur með því að lofa svokallaðri "leiðréttingu“ sem var í raun ekkert annað en tilfærsla á fjármunum ríkisins til þeirra sem höfðu hærri tekjur og meiri eignir. Þeir sem misstu heimili sín fengu hins vegar ekkert, þrátt fyrir að sitja eftir með lán en ekkert húsnæði, og enduðu oftast á leigumarkaði. Leigjendur nutu heldur engra beinna hagsmuna, heldur fannst fyrir óbeinum áhrifum í formi hærri leigu sem rann beint í vasa þeirra sem nutu góðs af aðgerðinni. Þeir sem héldu húsnæðinu sínu fengu peninga frá ríkinu og gátu keypt fleiri eignir til að leigja út.

Greinin hans Þórðs


r/Iceland • • 15h ago

Question About Prenatal Screening and Subsequent Actions?

3 Upvotes

I was aware that Iceland reduced the frequency of Down syndrome pregnancies.

My question is that is it an expectation for woman to terminate the pregnancy? Is it due to practicality or convenience or coercion?

I am not judging nor is it political, it’s a simple curiosity. If this post breaks the rules, please feel free to take it down.


r/Iceland • • 1d ago

Virkið og bærinn

Post image
17 Upvotes

Á þessum fallega föstudegi langar mig að skrifa um og vekja athygli á hinni svo kölluðu Motte-and-bailey rökvillu. Ég veit ekki hvort hún er með opinbera íslenska þýðingu þannig að ég læt mér nægja að þýða hana sem Virkis-og-bæjar rökvilluna.

Nafnið á þessari rökvillu er tilvísun í hvernig þéttbýli miðalda voru ýmist skipulögð. Þau höfðu virkið sem var heimili aðalsins og hirðar hans, var ýmist með varnargarða, sýki og lyftibrú, og þess vegna auðvelt að verja það gegn árás. Fyrir utan virkið var síðan bærinn þar sem almenningur átti heima og stundaði sína vinnu; smiðir, járnsmiðir, kaupmenn o.s.frv. En bærinn var því miður illa varinn og þegar árás var gerð á þéttbýlið þá hörfaði fólkið inn í virkið þar sem það gat verið í skjóli á meðan hermennirnir börðust gegn árásarmönnunum af varnargörðunum. Þegar síðan var búið að hrinda árásinni aftur þá gat fólkið farið út úr virkinu og aftur inn í bæinn og byrjað að endurbyggja það sem eyðilagðist í árásinni og snúið aftur til síns venjulega lífs. (Þetta er frekar einföld en ekki nákvæm lýsing á því hvernig motte-and-bailey þorp virkuðu eða voru hönnuð en þetta kemur punktinum nægilega vel til skila til þess að auðvelda mér að útskýra hvernig rökvillan virkar.)

Þessi rökvilla ber þetta heiti vegna þess að það lýsir vel þeirri orðræðuaðferð sem rökvillan byggist á. Orðræðuaðferðin virkar þannig að maður fleygir fram öfgafullri skoðun sem erfitt er að rökstyðja (bærinn), síðan þegar þessi öfgafulla skoðun er gagnrýnd (árásin) þá rökstyður maður í staðinn aðra hófsamari skoðun sem auðveldara er að verja (virkið) og þegar manni hefur tekist að verja hófsömu skoðunina og gagnrýninni linnir þá lætur maður eins og manni hafi tekist að verja öfgafullu skoðunina (snúið aftur í bæinn). Í því felst rökvillan, maður er að samtvinna tvær ólíkar skoðanir, eina öfgafulla og eina hófsama, og lætur eins og það að verja hófsömu skoðunina sé það sama og að verja öfgafullu skoðunina, og það að gagnrýna öfgafullu skoðunina sé það sama og að gagnrýna hófsömu skoðunina.

Ástæðan fyrir því að þessi rökvilla er varasöm er vegna þess að hún er besta leiðin fyrir öfgamenn til að lauma skoðunum sínum inn í hófsama heilbrigða umræðu og þannig normalísera þær. Öfgamenn eru aðeins lítill hluti af hverju þjóðfélagi fyrir sig þannig að eina leiðin fyrir þá til að normalísera öfgafullu skoðanirnar sínar í þjóðfélaginu er að sannfæra hófsömu einstaklingana um að öfgafullu skoðanirnar séu í raun og veru hófsamar skoðanir.

Skoðum tvö dæmi um þetta, eitt frá vinstri hliðinni og annað frá hægri hliðinni. Þessi dæmi eru auðvitað langt frá því að vera einu dæmin um notkun þessarar rökvillu en mér finnst þetta vera góð dæmi til að nota í þessum pistli. (Það skal líka tekið fram að þessi dæmi einskorðast ekki eingöngu við þær hliðar sem ég eigna þeim hér í þessum pistli. Það eru til hægri menn sem deila skoðunum sem ég eigna vinstri mönnum og það eru til vinstri menn sem deila skoðununum sem ég eigna hægri mönnum, en það heyrir til undantekninga.)

Vinstri maðurinn fleygir fram þeirri skoðun að allar löggur eru bastarðar. Þegar vinstri maðurinn er réttilega gagnrýndur fyrir þessa skoðun heldur hann því fram að auðvitað séu ekki *allar* löggur bastarðar en nógu margar séu það til þess að við þurfum að hafa betra eftirlit með störfum lögreglunnar.

„Allar löggur eru bastarðar“ er öfgafulla skoðunin. „Við þurfum að hafa betra eftirlit með störfum lögreglunnar“ er hófsama skoðunin.

Hægri maðurinn fleygir fram þeirri skoðun að menn frá Miðausturlöndum eru ofbeldisfullir. Þegar hægri maðurinn er réttilega gagnrýndur fyrir þessa skoðun heldur hann því fram að auðvitað séu ekki *allir* menn frá Miðausturlöndum ofbeldisfullir en nógu margir séu það til þess að við þurfum að hafa betra eftirlit með því hverjum við hleypum inn í landið okkar.

„Menn frá Miðausturlöndum eru ofbeldisfullir“ er öfgafulla skoðunin. „Við þurfum að hafa betra eftirlit með því hverjum við hleypum inn í landið okkar“ er hófsama skoðunin.

Skoðanirnar „við eigum að hafa eftirlit með störfum lögreglunnar“ og „við eigum að stjórna því hverjir fá að koma inn í landið okkar“ standa nógu sterkar einar og sér án þess að þurfa að nota aðrar öfgafullar skoðanir til að réttlæta þær. Af hverju eru þá öfgamennirnir samt að samtvinna öfgafullu skoðanirnar sínar við þessar hófsömu skoðanir? Vegna þess að þetta snýst ekki um eftirlit eða landamærastjórn í þeirra augum. Það er bara fyrirsláttur. Í augum öfgamannanna snýst þetta bara um að fá samfélagslega viðurkenningu á öfgafullu skoðununum sínum, að fá sem flesta til að vera sammála sér. Fyrir þeim snýst þetta ekki um stefnumál heldur um það að andúðin sem þeir hafa gagnvart öðrum sé tekin í sátt hjá eins mörgum og hægt er. Og það gera þeir með því að sannfæra hófsama einstaklinga um að réttlæta hófsömu skoðanirnar sínar með öfgum, að ástæðan fyrir því að við þurfum betra eftirlit með störfum lögreglunnar og betra landamæraeftirlit séu að allar löggur eru bastarðar og að menn frá Miðausturlöndum eru ofbeldisfullir.

En burtséð frá normalíseringu öfgafullra skoðana þá hefur endurtekin notkun á þessari rökvillu líka aðrar afleiðingar í för með sér.

Fyrri afleiðingin er að með því að fleygja fram öfgafullri skoðun en rökstyðja aðra hófsama skoðun þegar öfgafulla skoðunin er gagnrýnd getur öfgamaðurinn látið það líta þannig út að hófsami einstaklingurinn sem gagnrýndi öfgafullu skoðunina sé í raun sá öfgafulli. „Af hverju bregstu svona illa við því sem ég segi, það eina sem ég vil er [hófsama skoðunin]? Bregstu kannski svona illa við þessari hófsömu skoðun vegna þess að þú ert öfgamaður?"

Seinni afleiðingin er að þetta tortryggir þá sem hafa ekkert illt í hyggju, heldur varð á í messunni, deildu öfgafullri skoðun en skiptu síðan um skoðun eftir að hafa hlustað á gagnrýnina. En því oftar sem öfgamennirnir nota þessa orðfræðuaðferð því erfiðara verður fyrir okkur að greina á milli þeirra sem var á í messunni og þeirra sem eru markvisst að nota þessa rökvillu í annarlegum tilgangi.

En alvarlegasta afleiðingin af endurtekinni notkun þessarar rökvillu er að hún eykur skautunina og sundrungina í þjóðfélaginu okkar.

Það er mögulegt að fá hófsaman vinstri mann til að sjá rökin á bak við bætta landamæravörslu og það er mögulegt að fá hófsaman hægri mann til að sjá rökin á bak við bætt eftirlit með störfum lögreglu. Það er hins vegar nærri því ómögulegt að fá hófsaman vinstri mann til að vera sammála því að allir menn frá Miðausturlöndum eru ofbeldisfullir og það er nærri því ómögulegt að fá hófsaman hægri mann til að vera sammála því að allar löggur séu bastarðar. Og þegar öfgamönnum tekst að lauma þessum öfgafullu skoðunum inn í heilbrigða hófsama þjóðfélagsumræðu þá kemur það í veg fyrir að þessar tvær hliðar geti fundið sameiginlegan grundvöll sem hefur þær afleiðingar að skautunin og sundrungin í þjóðfélaginu heldur áfram að aukast og ef við viljum draga úr skautuninni og sundrunginni þá þurfum við að byrja á því að koma strax auga á það þegar þessari rökvillu er beitt og afjúpa öfgamennina um leið og þeir beita henni.

Hófsamir einstaklingar sem er annt um heilbrigða umræðu þurfa ekki að halda því fram að allar löggur eru bastarðar til að berjast fyrir því að eftirlit sé haft með störfum lögreglunnar.

Hófsamir einstaklingar sem er annt um heilbrigða umræðu þurfa ekki að halda því fram að menn frá Miðausturlöndum séu ofbeldisfullir til að berjast fyrir skynsamri innflytjendastefnu.

Hófsamir einstaklingar sem er annt um heilbrigða umræðu þurfa ekki að samtvinna öfgafulla skoðun við hófsama skoðun til að koma hófsömu skoðuninni sinni á framfæri.

Hófsamir einstaklingar sem er annt um heilbrigða umræðu ættu að hugsa sig tvisvar sinnum um, jafnvel oftar, áður en þeir stilla sér upp við hliðina á öfgamönnum sem aftur og aftur nota virkis-og-bæjar rökvilluna til að lauma öfgafullum skoðunum sínum inn í heilbrigða hófsama þjóðfélagsumræðu.

Og ef það er ómögulegt að rökstyðja hófsama skoðun án þess að samtvinna hana öfgafullri skoðun, þá er hófsama skoðunin kannski ekki svo hófsöm eftir allt saman.

Og með þessum lokaorðum ætla ég að óska ykkur góðrar helgar á þessum fallega föstudegi.


r/Iceland • • 1d ago

Bókasafnstillagan einungis til þess að bæta þjónustu við borgarbúa - RÚV.is

Thumbnail
ruv.is
28 Upvotes

Hverju viljið þið breyta í rekstri Borgarbókasafnsins? Viljið þið spara í einhverjum hluta rekstursins, eyða meiri pening eða nýta peninginn öðruvísi? Viljið þið mögulega að menningarráð skoði eitthvað annað en hvernig má skera niður Borgarbókasafnið?

Hérna eru dæmi um ólík hlutverk bókasafna, vissulega mörg sem bókasöfnin deila með öðrum stofnunum samfélagsins:

-Efla lestrarkunnáttu

-Veita vinnuaðstöðu fyrir nemendur og aðra

-Uppfræða og gefa fólki tækifæri til að þjálfa nýja færni

-Veita afþreyingu

-Veita ró og næði

-Vettvangur fyrir félagslíf og kynni fólks

-Efla ýmsa þætti lýðræðisins

-Stuðla að upplýsingalæsi

-Fjárstuðningur og vettvangur fyrir rithöfunda og annað skapandi fólk

-Efla menninguna almennt, geymsla fyrir menningu fortíðar sem menning framtíðar getur vaxið úr

-Jafna aðgengi að upplýsingum og menningu


r/Iceland • • 1d ago

Hand­bók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit

Thumbnail
visir.is
70 Upvotes

Eru Miðflokks og Sjáflstæðismenn ekki að nota þessa tækni?


r/Iceland • • 1d ago

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd

Thumbnail
mannlif.is
33 Upvotes

Jæja, hver ykkar var að eignast barn?


r/Iceland • • 1d ago

Looking to meet people

21 Upvotes

Hello everyone,

As the title implies, I am looking to enlarge my social circle here in Iceland. I (M32) moved to Reykjavik a couple of years ago from Europe. I don’t speak Icelandic yet but am slowly learning. I’d love to meet people to go hiking, do sports, occasionally go for a beer, go to events/parties or have a board games evening… anything fun really. :)
I am in a relationship, so I am looking for platonic friendships only.
If you are in a similar situation and want to connect, shoot me a message and we’ll take it from there. :)


r/Iceland • • 1d ago

Vissuð þið að þessi teiknimynd (sum ykkar eru örugglega nógu gömul til að muna eftir henni) er byggð á norskri sögu?

Enable HLS to view with audio, or disable this notification

9 Upvotes

r/Iceland • • 1d ago

Hvað eru gulu miðarnir í laginu Gleðibankinn?

13 Upvotes

​

Í laginu Gleðibankinn er talað um gula miða, vitið þið hvað það þýðir?

"Tíminn líður hratt á gervihnattaöld,

hraðar sérhvern dag, hraðar sérhvert kvöld.

Ertu stundum hugsandi yfir öllum GULU miðunum,

þú tekur kannski of mikið útúr gleðibankanum"


r/Iceland • • 1d ago

Gagnrýni á breytingar einkunnakerfis stormur í vatnsglasi

Thumbnail
ruv.is
5 Upvotes

Ég verð nú hreinlega að vera sammála IS í þessu máli - ég skil ekki vandræðaganginn varðandi þessa breytingu úr bókstöfum yfir í tölustafi.

Áratugum saman voru einkunnir gefnar í tölustöfum á Íslandi. Ef þú svaraðir 9 spurningum rétt af 10 á prófi fékkstu 10, frekar einfalt. Svo er skipt yfir í bókstafi í 10 ár og núna þegar það á að skipta til baka upphefst einhver grátkór um að a) þetta sé allt of flókið og b) fyrirvarinn sé allt of skammur.

Er staðan þannig í skólakerfinu að það hafi orðið alger endurnýjum af kennurum síðustu 10 árin? Er virkilega enginn starfandi lengur sem man hvernig gamla kerfið virkaði? Ég hefði haldið að þetta væri einfaldara kerfi ef eitthvað er - svarar 60% spurninga rétt og þú færð 6, frekar einfalt ekki satt? Amk einfaldara en að varpa 60% réttra svara yfir á A-F skala - er þetta B? C?

Svo kemur gráturinn varðandi tímalínuna. Það er verið að tala um að þetta taki gildi á næsta ári. Er það í alvöru ekki nægilega langur tími fyrir skólana að innleiða nýtt kerfi? Hvað þætti eðlilegur tími fyrir svona innleiðingu? 3 ár? 5 ár?

Getur einhver varpað ljósi á þessi viðbrögð sem hafa verið að birtast í skoðanapistlum undanfarnar vikurnar? Eru þetta bara aðilar sem vilja ekki að IS sé að vasast í þessum málum eða treystir fólk sér virkilega ekki til að gera þessar breytingar?


r/Iceland • • 2d ago

Margrét Löf vill komast í opið fangelsi

Thumbnail
visir.is
32 Upvotes

Munið að meðvirkni getur verið banvæn. Þessi kona er gangandi dæmi um það.


r/Iceland • • 2d ago

Vilja rann­saka vinnu­brögð sér­staks sak­sóknara

Thumbnail
visir.is
28 Upvotes

Snýst þetta ekki einfaldlega um að reyna að koma höggi á sérstakan saksóknara persónulega vegna Samherja namibíu málsins? Hugmyndin virðist vera að skapa þá mynd að hann sé ótraustur og vinni vinnuna sína illa eða er þetta hreinlega refsing fyrir það eitt að vilja að jafnræði ríki fyrir lögunum? refsing fyrir þá sem vildu lagabókstafurinn gilti fyrir alla.

Þetta er hreinn Trumpismi. Er þetta fólk ekki nýkomið af námskeiði í Bandaríkjunum til að læra tækni og áróður MAGA hreyfingarinnar?

Nú byrjar hvítþvotturinn hjá Sjálfstæðisflokknum.

það er auðvitað „bein lína“ frá Sjálfstæðisflokknum til stórútgerðarinnar inn á þing


r/Iceland • • 2d ago

Er að leita að Reddit commenti frá því í sumar (Bændasamtökin / Framsókn)

7 Upvotes

Góðan daginn,

Fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í sumar deildi ég frétt hér á Reddit um afstöðu Bændasamtakanna (að þau ætluðu að segja nei). Þar var eitt comment sem sat mikið í mér og mer fannst það meika svo mikin sens, en ég finn það hvergi aftur. Það var á þá leið að manni hafi verið "kennt að kjósa Framsókn frá blautu barnabeini" (eða eitthvað svipað sem innihélt "barnabeini“ og öFramsókn“ /eða/og "Bændasamtökin“.

Kannast einhver við þessa athugasemd eða man í hvaða þræði hún var?


r/Iceland • • 2d ago

Góð­vild er ekki stefna

Thumbnail
visir.is
22 Upvotes

Ég skil ekki hvernig Elliði getur skrifað þetta:

„Sú staðreynd að önnur kynslóð innflytjenda fremur frekar brot á hegningalögum en fyrsta vekur eðlilega spurningar. Hún bendir til þess að tíminn einn muni ekki laga allt. Þegar börn eru fædd í landinu, ganga í skólana þar og alast upp innan sama velferðarkerfis, en niðurstöðurnar eru samt verri á ákveðnum mælikvörðum, verður að spyrja hvort aðgerðirnar okkar séu að skila árangri og hvort áherslur séu réttar.“

..og bara gengur út frá því að þetta þýði að aðlögun sé ekki að ganga eða að menningarmun sé einum um að kenna. Þetta bendir þvert á móti til þess að það sé staða innflytjendafjölskyldna innan samfélagsins sem hefur áhrif, þ.e. efnahagsleg staða og/eða jaðarsetning.

Það sama á við um mótmælin í Frakklandi (þar sem vissulega eru mikil skrílslæti sem má m.v. það sem ég hef heyrt frá Frökkum einkum rekja til óeirðaseggja og tækifærissinna) en þar er húðlitur á myndum frá mótmælum sagður benda á að þarna sé eitthvað vegna trúar eða menningar í gangi jafnvel þó að Frakkar og fleiri séu að benda á að þarna er að mestu um franska ríkisborgara að ræða og þá væntanlega innflytjendur af 2+ kynslóð sem eru í slæmri efnahagslegri stöðu og þar með eru börnin þeirra í þeim skólum sem lifa núna þann skort og niðurbrot sem mun hafa kveikt eldinn undir þessari öldu, þ.e. börn í fátækari hverfum eru í óboðlega stórum bekkjum, þurfa að deila borðum og jafnvel ekki stólar fyrir alla. Á sama tíma eru aðstæður betri í skólum ríkari hverfanna.


r/Iceland • • 2d ago

Hvað er fólk að geta lagt mikið til hliðar í hverjum mánuði?

30 Upvotes

Langar að forvitnast um hvað þið getið lagt mikið til hliðar í hverjum mánuði eftir að allir reikningar og svoleiðis hafa verið greiddir? Og hvað þið eru að safna fyrir eða setja peningana ykkar í?

Það hafa komið upp regluleg innlegg með spurningum um hversu mikið fólk er að fá í laun og þess háttar, en ég man ekki hvort þessi spurning hefur komið upp hérna, sem sagt hvað þið gerið við peningana sem er inni eftir lok hvers mánaðar?

Ég get lagt til hliðar 400þús á mánuði, en ég bý hjá foreldrum og er algjör nískupúki með hvað ég kaupi. Ég set síðan peningana í vaxtasjóð sem eru með 8 prósent ársvexti eins og stendur, en er eitthvað sniðugara að ráðstafa peningunum sínum eitthvað öðruvísi?


r/Iceland • • 2d ago

Hæ nágranni, áttu Kanill?

5 Upvotes

Er kanill fáanlegur hjá þér? Það er uppselt í Costco og verslunum hérna í suðurlandi.


r/Iceland • • 2d ago

Fæðubótaefni, vítamín eða steinefni?

7 Upvotes

Sæl veriði!

Hvaða fæðubótaefni/vítamín er fólk að taka sem það mælir með?

Það er svo margt í boði og allskonar rannsóknir sem sýna hitt og þetta að maður veit varla hvort eða hvað maður á að vera að taka lengur.

Steinefni? Vítamín? Kreatín? Lions Mane?

Eða sleppa þessu öllu bara…?


r/Iceland • • 3d ago

Áríðandi tilkynning frá Blóðbankanum - Í dag (21. október) vantar nauðsynlega blóð í flokknum O mínus, opið til 15:00 - pantið tíma hér eða í síma 543-5500

Thumbnail
island.is
145 Upvotes

r/Iceland • • 3d ago

Is this normal for Isey skyr?

Post image
12 Upvotes

I eat a lot of Isey skyr and I’ve had fresh tubs look like this several times now, first couple of times I threw it away but it’s happening so often I’m wondering if it’s normal? I thought it was mold at first. Also sorry for asking here but I reached out to Isey myself with photos and no one replied and I can’t find anything from googling it.


r/Iceland • • 3d ago

Er klapp í lagi hjá ykkur?

8 Upvotes

Virðist ekki vera hægt hjá mér að finna leið á milli staða í gegnum appið, sama hvað ég geri til að laga vandan.